Upplýsingar um FATCA
Á rsk.is má nú finna upplýsingar um FATCA samning milli Bandaríkjanna og Íslands sem undirritaður var í maí sl.
Í samningnum er kveðið á um upplýsingaskyldu fjármálastofnana og upplýsingaskipti milli ríkjanna.
Þá er að finna á rsk.is helstu álitaefni sem upp hafa komið í tengslum við innleiðingu og beitingu á samningnum sem og svör við þeim álitaefnum. Einnig er að finna leiðbeiningar um áreiðanleikakönnun sem íslenskar fjármálastofnanir þurfa að ráðast í til að geta auðkennt bandaríska reikningshafa.
Sjá nánar upplýsingar um FATCA
- Næsta færsla
- Fyrri færsla