Skattar, gjöld og bætur árið 2015
Upplýsingar um staðgreiðslu, barnabætur, vaxtabætur, virðisaukaskatt o.fl. á árinu 2015.
Staðgreiðsla
Staðgreiðsla skatta 2015 er reiknuð í þremur þrepum. Útreikningur fyrir mánaðartekjur er sem hér segir:
- Af fyrstu 309.140 kr. 37,30%
- Af næstu 527.264 kr. 39,74%
- Af fjárhæð umfram 836.404 kr. 46,24%
Frádráttur vegna lífeyrisréttinda
Heimill frádráttur vegna greiðslu launþega til almennra lífeyrisréttinda er 4% af iðgjaldsstofni. Heimill frádráttur vegna séreignarsparnaðar er 4%.
Persónuafsláttur
Persónuafsláttur er 50.902 kr. á mánuði.
Skattlagning barna
Börn fædd 2000 og síðar greiða 6% af tekjum yfir 180.000 kr.
Laun frá fleiri en einum launagreiðanda
Þeir sem hafa laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að gæta þess að rétt hlutfall sé notað við útreikning á staðgreiðslu. Fari laun yfir 309.140 kr. hjá einum launagreiðanda þarf að reikna 39,74% staðgreiðslu af launum hjá öðrum launagreiðendum, eða eftir atvikum 46,24%.
Tryggingagjald
Tryggingagjald er 7,49%.
Fjársýsluskattur
Fjársýsluskattur er 5,5%.
Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur er 20%.
Barnabætur, vaxtabætur o.fl.
Barnabætur
Barnabætur með fyrsta barni hjóna eru 194.081 kr. og með hverju barni umfram eitt 231.019 kr. Með fyrsta barni einstæðs foreldris eru þær 323.253 kr. og með hverju barni umfram eitt 331.593 kr.
Skerðingarmörk vegna tekna eru 4.800.000 kr. hjá hjónum og 2.400.000 kr. hjá einstæðu foreldri. Bæturnar skerðast um 4% af tekjum umfram þessi mörk fyrir eitt barn, 6% fyrir tvö börn og 8% ef börnin eru þrjú eða fleiri.
Viðbótargreiðsla með hverju barni yngra en 7 ára er 115.825 kr. og skerðist um 4% af tekjum umfram ofangreind mörk.
Vaxtabætur
Hámark vaxtabóta er 400.000 kr. fyrir einhleyping, 500.000 kr. fyrir einstætt foreldri og 600.000 kr. fyrir hjón/sambúðarfólk.
Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta geta ekki orðið hærri en 7% af eftirstöðvum skulda vegna íbúðarkaupa og að hámarki 800.000 kr. hjá einhleypingi, 1.000.000 kr. hjá einstæðu foreldri og 1.200.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki. Skerðing vegna tekna er 8,5% af tekjustofni.
Vaxtabætur einhleypinga og einstæðra foreldra byrja að skerðast við nettóeign 4.000.000 kr. og falla niður þegar hún nær 6.400.000 kr. Vaxtabætur hjóna og sambúðarfólks byrja að skerðast við nettóeign 6.500.000 kr. og falla niður þegar hún nær 10.400.000 kr.
Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur er 20%. Frítekjumark vegna vaxtatekna er 125.000 kr. á mann. Frádráttur vegna leigutekna manna af íbúðarhúsnæði er 30% af leigutekjum. Frítekjumark gildir ekki um arð, söluhagnað og leigutekjur af öðru en íbúðarhúsnæði.
Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra
Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra er 10.159 kr. á einstaklinga sem fæddir eru 1945 og síðar og eru með tekjur yfir 1.624.603 kr. á ári. Undanþegin eru börn innan 16 ára aldurs.
Útvarpsgjald
Útvarpsgjald er 17.800 kr. á einstaklinga sem fæddir eru 1945 og síðar og eru með tekjur yfir 1.624.603 kr. á ári. Undanþegin eru börn innan 16 ára aldurs.
Skattlagning lögaðila
Tekjuskattur hlutafélaga, einkahlutafélaga og samvinnufélaga er 20% við álagningu 2015.
Tekjuskattur annarra lögaðila er 36% og gildir það m.a. um sameignar- og samlagsfélög, þrotabú og dánarbú.
Virðisaukaskattur
Almennt skatthlutfall virðisaukaskatts verður 24% frá og með 1. janúar 2015. Lægra skattþrep virðisaukaskatts verður 11% frá sama tíma.
Sjá nánar breytingar á virðisaukaskatti
Skilafrestir á gögnum vegna framtals 2015
Skilafrestur á launamiðum og öðrum gögnum vegna framtals 2015 er til 30. janúar. Sé skilað á rafrænu formi lengist fresturinn til 10. febrúar.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla