Til endurskoðenda, bókhaldsstofa og viðurkenndra bókara.
Frestur þessi er einvörðungu fyrir þá sem atvinnu hafa af framtalsgerð.
Þótt formlegum fresti ljúki 19. september 2014 verður leitast við að taka við innsendum framtölum eftir þann tíma, eftir því sem tök verða á, enda standist þau framtöl skoðun.
Ríkisskattstjóri mælist eindregið til þess að skattframtölum lögaðila sé skilað jafnóðum og lokið sé við gerð þeirra.
Daganna 20. og 22. september 2014 mun ríkisskattstjóra birta auglýsingu í dagblöðum um að allir frestir til að skila framtölum séu liðnir. Sömuleiðis verða tölvupóstar sama efnis sendir til forráðamanna lögaðila.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla