Forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra heimsækja RSK
Þann 19. maí sl. heimsótti Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra embætti ríkisskattstjóra. Með í för voru Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri og aðstoðarmenn forsætisráðherra þeir Jóhannes Sturluson og Sigurður Már Jónsson. Daginn áður hafði verið opnað fyrir umsóknir um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána á vefnum leidretting.is. Þakkaði forsætisráðherra ríkisskattstjóra fyrir mikið og gott starf, og sagði það aðdáunarvert hvernig staðið hefði verið að málum hjá embættinu.
Þann 22. maí heimsótti síðan Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra ríkisskattstjóra. Með honum í för voru Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri, Svanhildur Hólm Valsdóttir aðstoðarmaður ráðherra og verkefnastjórar Leiðréttingarinnar þau Guðrún Ögmundsdóttir og Tryggvi Þór Herbertsson. Fjármálaráðherra ávarpaði starfsmenn í matsal og þakkaði þeim vel unnin störf, en hér var bæði um flókna og umfangsmikla aðgerð að ræða. Sömuleiðis kynnti ráðherra sér önnur störf ríkisskattstjóra og heilsaði upp á hluta starfsmanna.
Helgi Guðnason skrifstofustjóri á einstaklingssviði og Bjarni Benediktsson
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra
Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Guðrún Ögmundsdóttir verkefnisstjóri Leiðréttingarinnar og Svanhildur Hólm Valsdóttir aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra
Sigmundur Davíð heilsar upp á starfsmenn Höfuðstólsleiðréttingarinnar
Bjarni Benediktsson ávarpar starfsmenn ríkisskattstjóra í matsal
Sigmundur Davíð heilsar upp á starfsmenn Höfuðstólsleiðréttingarinnar
Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og verkefnastjórar Leiðréttingarinnar, þau Tryggvi Þór Herbertsson og Guðrún Ögmundsdóttir, kynna sér starfsemi ríkisskattstjóra
- Næsta færsla
- Fyrri færsla