Frestur atvinnumanna framlengdur
Ríkisskattstjóri hefur framlengt frest þeirra sem atvinnu hafa af framtalsgerð til skila á einstaklingsframtölum 2014.
Fresturinn er lengdur um eina viku. Lokaskiladagur verður miðvikudagurinn 14. maí 2014.
Gildir þetta bæði um skattframtöl launamanna og skattframtöl einstaklinga með atvinnurekstur.
Ríkisskattstjóri fer þess vinsamlegast á leit að framtölum verði skilað jöfnum höndum, svo fljótt sem auðið er. Er þetta sérstaklega mikilvægt.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla