Vefur ríkisskattstjóra, besti ríkisvefurinn 2013

29.11.2013

Vefurinn rsk.is hlaut viðurkenninguna „besti ríkisvefurinn 2013“ að mati dómnefndar.

Á ráðstefnu sem haldin var í gær, fimmtudaginn 28. nóvember, á vegum innanríkisráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skýrslutæknifélags Íslands, var tilkynnt hvaða opinberu vefir stofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga þættu bestir í notkun og virkni.  Alls voru kannaðir 265 vefir og mat lagt á þætti er snerta innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu.  Jafnframt valdi sérstök dómnefnd besta vef sveitarfélags og besta ríkisvefinn fyrir árið 2013.

Upplýsingavefur ríkisskattstjóra, rsk.is, fékk hæstu einkunn en vefurinn fékk í heildina 98 stig af 100 mögulegum, þar af fullt hús stiga í þremur af fyrrgreindum fjórum flokkum.

Vefur ársins 2013 - súlur

Að auki hlaut vefur RSK viðurkenninguna: „Besti ríkisvefurinn 2013“ að mati dómnefndar, en formaður hennar var Marta Kristín Lárusdóttir lektor við Háskólann í Reykjavík.  Í umsögn dómnefndar um vefinn segir:

„Vefurinn er uppbyggður á skipulegan hátt og tekist hefur að setja fram gríðarlega mikið magn flókinna upplýsinga á skýran og aðgengilegan hátt.  Leitarvélin virkar vel og gerir upplýsingaleit auðvelda.  Útlit vefsins er stílhreint, hann hefur rólegt yfirbragð og þægilegt viðmót“

Nýi vefurinn, sem var tekinn í notkun 2. október 2012 á 50 ára afmæli stofnunarinnar, er verk fjölmargra starfsmanna ríkisskattstjóra sem og starfsmanna Hugsmiðjunnar.

Á myndinni eru þeir starfsmenn ríkisskattstjóra sem báru hitann og þungann af vinnu við nýja vefinn. Frá vinstri: Jóhannes Jónsson, Elín Alma Arthúrsdóttir, Einar Valur Kristinsson, Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, Haraldur Hansson, Bryndís Gunnlaugsdóttir og Ragnheiður Björnsdóttir

Á myndinni eru þeir starfsmenn ríkisskattstjóra sem báru hitann og þungann af vinnu við nýja vefinn. Frá vinstri: Jóhannes Jónsson, Elín Alma Arthúrsdóttir, Einar Valur Kristinsson, Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, Haraldur Hansson, Bryndís Gunnlaugsdóttir og Ragnheiður Björnsdóttir.

Vefur ársins 2013

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum