Heimsókn iðnaðar- og viðskiptaráðherra til RSK
Hinn 21. maí sl. heimsótti Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra embætti ríkisskattstjóra og átti fund með nokkrum starfsmönnum embættisins.
Ásamt ráðherra sátu þau Valgerður Rún Benediktsdóttir skrifstofustjóri og Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðstoðarmaður ráðherra fundinn auk þeirra Hörpu Theodórsdóttur, Sigurbjargar S. Guðmundsdóttur og Brynhildar Pálmarsdóttur starfsmanna Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Á fundinum var farið yfir atriði er snerta fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, einkum þær breytingar sem á döfinni eru hvað varðar rafræna fyrirtækjaskrá, verkefni er snerta ársreikningaskrá ríkisskattstjóra, skatteftirlit með ferðaþjónustu auk annarra verkefna.
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Ingvar Pétur Guðbjörnsson, Jens Þór Svansson, Brynhildur Pálmarsdóttir, Bryndís Gunnlaugsdóttir, Ragnhildur D. Þórhallsdóttir, Skúli Jónsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir, Skúli Eggert Þórðarson, Harpa Theodórsdóttir, Valgerður Rún Benediktsdóttir, Jóhannes Jónsson og Sigurbjörg S. Guðmundsdóttir
Á myndinni eru iðnaðar- og viðskiptaráðherra ásamt starfsmönnum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis. Talið frá vinstri: Sigurbjörg S. Guðmundsdóttir, Brynhildur Pálmarsdóttir, Valgerður Rún Benediktsdóttir, Harpa Theodórsdóttir, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðstoðarmaður ráðherra.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla