Framtalsskil einstaklinga - nýtt met
Framtalsskil einstaklinga hafa gengið mjög vel en aldrei hefur jafn mörgum framtölum verið skilað fyrir álagningu.
Hefur fjöldi rafrænna skattframtala aldrei verið meiri, hvort heldur
um er að ræða hefðbundin eða svokölluð einfaldari framtöl. Þá hafa skil á
framtölum verið mun fyrr á ferðinni í samanburði við síðustu ár og á það
bæði við um skil einstaklinga og fagaðila.
Álagning einstaklinga 2018 verður lögð fram 31. maí nk. og hefur henni þá verið flýtt tvívegis á undanförnum þremur árum, um mánuð í hvort skipti. Framsetning álagningar verður með nýjum hætti í ár sem ætti að auðvelda framteljendum að átta sig á niðurstöðum hennar, en m.a. verður hægt að sjá sundurliðaðan útreikning á einstökum liðum.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla