Bankareikningar
Reikningsnúmer: 0101-26-85002
Kennitala: 540269-6029
Kvittun með skýringu sendist á netfangið 85002[hja]skatturinn.is
Skuldastaða
Ef greiða á skuld að fullu er mikilvægt að fá fyrst upplýsingar um nákvæma skuldastöðu, þar sem vextir reiknast daglega.
- Upplýsingar um skuldastöðu þína getur þú sótt á þjónustusíðu Skattsins eða í pósthólfinu þínu á island.is.
- Einnig er hægt að hafa samband við innheimtumann ríkissjóðs til að fá upplýsingar um rétta stöðu, sendu fyrirspurn á skatturinn@skatturinn.is.
- Ef greitt er fyrir annan aðila verður að senda skýringu með greiðslunni á netfangið skatturinn@skatturinn.is þar sem þarf að koma fram hver greiddi og kennitala þess sem verið er að greiða fyrir.
Athugið að greiðslur í heimabanka um helgar og eftir kl. 21 á virkum dögum bókast næsta virka dag og vextir bætast við upphæðina.
Greiðslur
sem nema 10.000.000 kr. eða hærra þarf að framkvæma milli kl. 9:00 og
16:15 á virkum bankadögum.
Ríkisskattstjóri er innheimtumaður á höfuðborgarsvæðinu. Annars staðar á landinu sjá sýslumenn um innheimtuna.
Upplýsingar um bankareikninga annarra innheimtumanna ríkissjóðs
Bankareikningar Skattsins:
Veljið reikning hér að neðan til að fá nánari upplýsingar. Munið að senda skýringar með greiðslum.
Launaafdráttur utan staðgreiðslu
Banki | Hb. | Reikningur | Kennitala |
---|---|---|---|
0101 | 26 | 7649 | 540269-6029 |
IBAN IS06 0101 2600 7649 5402 6960 29
SWIFT (BIC): NBIIISRE
Skil launagreiðenda á opinberum gjöldum starfsmanna utan staðgreiðslu. Sundurliðanir skal senda án tafar til ríkisskattstjóra á fax númer 562-5826 eða á 7649[hja]skatturinn.is
Staðgreiðsla og tryggingagjald
Banki | Hb. | Reikningur | Kennitala |
---|---|---|---|
0001 | 26 | 25111 | 540269-6459 |
Gjalddagi er 1. dagur mánaðar og eindagi 14 dögum síðar. Hægt er að skila sundurliðunum rafrænt á eyðublaði RSK 5.06. Ávallt skal senda skilagrein RSK 5.10 án tafar til ríkisskattstjóra. Einnig skal senda sundurliðun RSK 5.06 þar sem hún á við, sé henni ekki skilað rafrænt til RSK. Takið eftir að nákvæmar leiðbeiningar varðandi útfyllingar þessara eyðublaða eru á bakhlið þeirra.
Önnur gjöld - opinber gjöld utan staðgreiðslu (AB), virðisaukaskattur–eftirstöðvar, álagt tryggingagjald, bifreiðagjöld-eftirstöðvar, þungaskattur, vinnueftirlitsgjald, tollkrít og öll önnur ótalin gjöld.
Banki | Hb. | Reikningur | Kennitala |
---|---|---|---|
0101 | 26 | 85002 |
540269-6029 |
IBAN: IS91 0101 2608 5002 5402 6960 29
SWIFT (BIC): NBIIISRE
Öll önnur gjöld skal láta millifæra á þennan reikning: greiðslur á opinberum gjöldum utan staðgreiðslu (AB), eldri gjaldfallin gjöld í staðgreiðslu (SK SR), tryggingagjaldi (SJ) og virðisauka (VA). Kvittun með skýringu sendist á netfangið: 85002[hja]skatturinn.is
Reikningurinn er einnig til móttöku gjalda, sem ekki er getið hér að ofan.
Greiðslur á tollskýrslum
Banki | Hb. | Reikningur | Kennitala |
---|---|---|---|
0101 | 26 | 85002 | 540269-6029 |
IBAN: IS91 0101 2608 5002 5402 6960 29
SWIFT (BIC): NBIIISRE
Með greiðslum á tollskýrslum skal ávallt senda skýringu með sendingarnúmerum á netfangið gt[hja]skatturinn.is.
Fyrirtækjaskrá
Banki | Hb. | Reikningur | Kennitala |
---|---|---|---|
0515 | 26 | 723000 | 540269-6029 |
Tilkynningu um greiðslu má senda á netfangið fyrirtaekjaskra@skatturinn.is. Gjald fyrir stofnun og skráningu félaga, fyrirtækja og við gerð vottorða má greiða inn á þennan reikning.