Dómar

Dómur Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 263/2011

26.4.2012

Íslenska ríkið gegn Dóra hf.

Með dómi Hæstaréttar sem kveðinn var upp þann 26. apríl 2012 var héraðsdómur í máli Dóra hf. gegn íslenska ríkinu staðfestur og úrskurður skattstjóra felldur úr gildi.

Í málinu var deilt um það hvort að stefnandi gæti fært kostnað við kaup á aflamarki til gjalda í skattskilum sínum og dregið hann frá tekjum sínum á árinu 2006. Í úrskurði skattstjóra var því hafnað með vísan til þess að kaup stefnanda á aflamarki féllu undir ákvæði 1. mgr. 48. gr. tekjuskattslaga en það ákvæði kveður á um bann við fyrningu á stofnkostnaði við kaup á réttindum sem ekki rýrna vegna notkunar.

Hæstiréttur staðfesti héraðsdóm með vísan til forsendna. Í héraðsdómi kemur fram að það bann sem felist í framangreindu ákvæði tekjuskattslaga nái aðeins til stofnkostnaðar við kaup á aflahlutdeild en ekki til þess kostnaðar sem hlýst af því að kaupa á sama tíma það aflamark sem úthlutað hefur verið á grundvelli aflahlutdeildarinnar en er óveitt á kaupdegi. Að þessu virtu skorti úrskurð skattstjóra lagastoð og var hann felldur úr gildi.

Til baka Prenta

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum