Dómar

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-5039/2014

8.7.2015

Þórður Már Jóhannesson gegn íslenska ríkinu

Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp þann 7. júlí 2015 var íslenska ríkið sýknað af kröfum stefnanda.

Í málinu var deilt um hvort skattleggja bæri tekjur sem stefnandi fékk vegna hlutabréfaviðskipta sem fjármagnstekjur eða launatekjur.

Í dómi héraðsdóms kemur fram að með samningum sem eignarhaldsfélag stefnanda gerði við vinnuveitanda stefnanda um kaup á hlutabréfum hafi stefnanda verið veitt starfstengd hlunnindi. Umrædd hlunnindi væru tekjur sem skattskyldar væru samkvæmt 1. mgr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. tekjuskattslaga og bæri því að skattleggja þær sem laun. Þá var fallist á það með stefnda að tekjurnar hefðu fallið til þegar eignarhaldsfélag stefnanda losnaði undan kvöðum um kauprétt vinnuveitanda stefnanda.

Hlekkur á dóminn:
http://www.heradsdomstolar.is/default.aspx?pageid=347c3bb1-8926-11e5-80c6-005056bc6a40&id=801c73c2-1525-4c93-a110-28e9c26d1172

Til baka Prenta

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum