Ákvarðandi bréf nr. 985/2001
Breytingar á lögum og reglugerðum
1. nóvember 2001
G-Ákv. 01-985
Bréf þetta geymir yfirlit yfir breytingar sem gerðar hafa verið frá 16. janúar 2001 á lögum og reglugerðum á sviði virðisaukaskatts, þ.e. frá síðasta yfirlitsbréfi ríkisskattstjóra, G-ákv 968/01. Engar breytingar hafa á þessum tíma verið gerðar á skilagjaldi, vörugjaldi, búnaðargjaldi og iðnaðarmálagjaldi.
Virðisaukaskattur – lagabreytingar:
Nr. 57/2001 | Um tímabundna endurgreiðslu 2/3 hluta virðisaukaskatts til þeirra sem hafa leyfi til farþegaflutninga í atvinnuskyni. |
---|
Virðisaukaskattur – reglugerðarbreytingar:
Nr. 540/2001 | Ný reglugerð. Um tímabundna endurgreiðslu 2/3 hluta virðisaukaskatts vegna kaupa eða leigu hópferðabifreiða. |
---|---|
Nr. 541/2001 | Ný reglugerð. Um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna sölu hópferðabifreiða úr landi. |
Nr. 741/2001 | Breyting á reglugerð nr. 667/1995, um framtal og skil á virðisaukaskatti. Breyting varðar rafræn skil á virðisaukaskatti. |
Virðisaukaskattur - reglubreytingar
Nr. 165/2001 | Nýjar reglur. Um endurgreiðslu virðisaukaskatts til Norræna fjárfestingarbankans. |
---|
Unnið er að endurútgáfu prentaðs laga- og reglugerðarsafns virðisaukaskatts o. fl. gjalda. Í framhaldinu verður lagasafnið uppfært á netinu.
Ríkisskattstjóri