Ákvarðandi bréf
Ákvarðandi bréf eru svör ríkisskattstjóra við fyrirspurnum um skattaleg málefni sem borist hafa embættinu og talið er að svörin geti haft almenna skírskotun og þannig átt erindi við fleiri en fyrirspyrjanda. Ákvarðandi bréf á einungis við um það tilvik sem um ræðir hverju sinni og gefur vísbendingar um niðurstöðu í algjörlega sambærilegum málum að óbreyttum lögum og reglum. Í einstaka tilviki eiga ákvarðandi bréf ekki uppruna sinn í fyrirspurnum heldur eru birtar á sama hátt túlkanir ríkisskattstjóra á skattalegum álitaefnum.